RS-veira

Staðreyndablað

Hvað er RS-veira? 

RS-veiran er algeng öndunarfæraveira sem veldur vægum kvefeinkennum. Fólk sem smitast af RS-veirunni batnar venjulega á um viku án þess að þurfa á læknismeðferð að halda. Hins vegar, hjá ungbörnum yngri en sex mánaða, fólki yfir 65 ára og fólki með skert ónæmiskerfi, getur RS-veiran valdið alvarlegum veikindum og dauða. 

Í ESB, Noregi og Bretlandi ber RS-veiran ábyrgð á innlögn um 213.000 barna yngri en fimm ára, sem sum þurfa gjörgæslu, og um það bil 158.000 fullorðna á hverju ári. Einn af hverjum tuttugu öldruðum í Evrópu smitast af RS-veirunni á hverju ári.

Baby with RSV complications (blue lips, flared nostrils) crying

Hver eru einkenni RS-veirunnar? 

RS-veiran hefur mismunandi áhrif á mismunandi aldurshópa, en algengustu einkenni sjúkdómsins eru:

  • Hósti
  • Hnerri
  • Hiti
  • Nefrennsli
  • Önghljóð

Ungbörn sem fá RS-veiruna geta fengið annarskonar einkenni svo sem:

  • Pirringur
  • Minnkuð matarlyst
  • Breytingar á öndunarmynstri
  • Öndunarstöðvun (e. apnoea; tímabundið öndunarstopp, sérstaklega í svefni)

Hjá börnum undir 5 ára getur RS-veiran einnig valdið:

  • Hröð öndun
  • Erfiðleikum við að kyngja
  • Blóðsýkingu (e. sepsis; lífshættuleg sýking með ofsafengnu bólguviðbragði, oft samfara blóðþrýstingsfalli)

Fullorðnir með RS-veiruna geta einnig fundið fyrir særindum í hálsi, höfuðverk, andþyngslum og þreytu.

Hverjir eru fylgikvillar RS-veirunnar? 

Þó að flest tilvik séu væg, getur RS-veiran valdið versnun undirliggjandi sjúkdóma og alvarlegum fylgikvillum sem geta verið lífshættulegir. Fylgikvillar alvarlegrar sýkingar af völdum RS-veirunnar eru berkjungabólga (bólga í smæstu öndunarvegum) og lungnabólga 

Hjá ungbörnum og ungum börnum eru öndunarerfiðleikar merki um alvarlega sýkingu af völdum RS-veirunnar sem krefjast tafarlausrar læknishjálpar. Hraður, grunnur andardráttur, blakt á nasavængjum við innöndun, hávær öndun, öndunarhlé og inndrættir á brjóstkassa benda til þess að þörf sé á bráðri læknishjálp. Að auki ættu foreldrar að vera á varðbergi gagnvart bláum eða gráum lit á vörum, munni eða fingurnöglum þar sem þetta er merki um verulega minnkaða súrefnismettun í blóði.  

Ungbörn geta einnig fengið blóðsýkingu, sýkingu í blóðrásinni sem getur valdið ýmsum einkennum, þar á meðal blóðþrýstingsfalli, hröðun á hjartslætti og hita. Aldraðir sjúklingar með RS-veiruna geta fengið fylgikvilla eins og versnun langvinnrar lungnateppu og hjartasjúkdóma.  

 Elderly relative plays with toddler - the elderly and very young are most at risk of RSV

Hvernig smitast RS-veiran? 

RS-veiran smitast milli manna með ögnum og dropum sem berast út í loftið þegar sýktur einstaklingur andar, talar, hóstar eða hnerrar.
Veiran smitast einnig við nána snertingu svo sem kossa milli foreldra og barna.  

RS-veiran getur einnig smitast þegar dropar frá öndunarfærum lenda á yfirborði sem aðrir snerta. Veiran berst þá á hendurnar og fólk smitast þegar það snertir nefið, munninn eða augun. Þetta er algeng smitleið hjá smábörnum og ungum börnum sem snerta mengað yfirborð eða leikföng eða setja mengaða hluti í munninn. 

Einkenni koma venjulega fram tveimur til átta dögum eftir sýkingu.

Hverjir eru í áhættu að fá RS-veiruna?

RS-veiran getur smitað fólk á hvaða aldri sem er og næstum öll börn sýkjast af RS-veirunni áður en þau verða tveggja ára.  
Þeir sem eru í mestri hættu eru fyrirburar og börn yngri en sex mánaða, fólk eldra en 65 ára og þeir sem eru með veiklað ónæmiskerfi eða undirliggjandi sjúkdóma eins og sykursýki, hjartasjúkdóma og lungnasjúkdóma.  

Pregnant person getting vaccinated against RSV by their doctor

Hvernig er hægt að koma í veg fyrir RS-veiruna? 

Árið 2023 samþykkti Evrópusambandið fyrsta bóluefnið gegn RS-veirunni sem hentar til verndar ungbörnum allt að sex mánaða aldri og tvö bóluefni fyrir eldri fullorðna. Þegar bóluefni er gefið móður á meðgöngu fara mótefnin sem myndast sem svar við bóluefninu yfir fylgjuna til fóstursins og vernda barnið í allt að sex mánuði eftir fæðingu. 

Almennar varnir gegn smiti eru þær sömu og fyrir flestar aðrar öndunarfæraveirur. Ráðstafanir eins og að þvo og hreinsa hendur oft, hylja nef og munn þegar þú hnerrar og forðast snertingu við aðra þegar þeir eru veikir getur hjálpað til við að takmarka útbreiðslu RS-veirunnar og vernda viðkvæmt fólk.  
 

Hvernig er RS-veirusýking meðhöndluð?

Væg tilfelli af RS-veirunni þurfa venjulega enga meðferð þar sem fólk jafnar sig eftir nokkra daga. Ungbörn yngri en sex mánaða gætu þurft að dvelja á sjúkrahúsi til að fylgjast með öndun og súrefnismagni. 

Í alvarlegum tilfellum getur sjúkrahúsmeðferð falið í sér stuðningsmeðferð, öndunarstuðning og veirulyf ásamt sértækri meðferð við fylgikvillum sem geta komið upp

Í sumum tilfellum geta börn undir 2 ára þurft lyf, þar með talið veirulyf, til að draga úr hættu á alvarlegum sjúkdómi ef þau smitast.